Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á lyflækningadeild
Langar þig í hvetjandi og lærdómsríkt starf þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Við leitum eftir 1.- 4. árs hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hóp í lærdómsríku starfsumhverfi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag (20-80%). Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Störfin eru laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Deildin er 18 rúma bráðalegudeild almennra lyflækninga. Þar starfa um 70 manns í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Þátttaka í teymisvinnu
- Hjúkrunarnemi á 1.-4. ári
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarnemi, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5