Heilbrigðisgagnafræðingur - Áhugavert starf hjá brjóstaskurðlækningum á Brjóstamiðstöð
Í boði er áhugavert starf heilbrigðisgagnafræðings við umsjón og skráningu heilbrigðisgagna á brjóstaskurðlækningadeild ásamt skipulagi og undirbúningi þverfaglegra samráðsfunda. Við sækjumst eftir skipulögðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund og sem á auðvelt með að vinna í teymi.
Brjóstaskurðlækningar er sjálfstæð sérgrein innan Brjóstamiðstöðvar Landspítala á Eiríksgötu 5. Á Brjóstamiðstöð starfar öflugt teymi sérfræðinga frá mörgum sérgreinum og fagstéttum. Þjónustan er í stöðugri þróun þar sem mikil áhersla er lögð á þjónustumiðaða nálgun og tæknivæðingu eininga.
Á einingunni er lögð sterk áhersla á teymisvinnu og uppbyggingu mannauðs með það í huga að byggja upp skemmtilegan vinnustað með möguleika á að taka þátt í daglegri umbótavinnu samhliða hefðbundnum störfum.
Næsti yfirmaður er yfirlæknir brjóstaskurðlækningadeildar. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Umsjón og undirbúningur samráðsfunda sérgreinar í samráði við yfirlækni
- Umsjón og skráning gagna í heilbrigðisgagnagrunn í samráði við yfirlækni
- Upplýsingagjöf og samskipti við starfsmenn og stofnanir
- Skipuleggja og hafa yfirsýn yfir fundi, vinnustofur og aðra viðburði innan sérgreinarinnar
- Ýmis verkefni í samvinnu við yfirlækni brjóstaskurðlækningadeildar
- Samvinna og samstarf við aðrar sérgreinar innan spítalans í samráði við yfirlækni
- Íslenskt starfsleyfi heilbrigðisgagnafræðings
- Reynsla af skráningu heilbrigðisgagna
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
- Framúrskarandi tölvukunnátta, reynsla af notkun Excel og annarra gagnagrunna
- Áhugi, hæfni og geta til að starfa í teymi
- Mjög góð kunnátta í íslensku, og góð kunnátta í ensku
- Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur, skrifstofustörf, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5