Sjúkraliði óskast á endurhæfingardeildina á Grensási
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á endurhæfingardeildina á Grensási vegna fjölgunar á legurýmum. Við bjóðum jafnt velkominn reynslumikinn sem og nýútskrifaðan sjúkraliða í okkar góða hóp því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu.
Á Grensási er veitt frumendurhæfing eftir erfið veikindi og slys. Hjúkrunin er fjölbreytt og áhersla er á þverfaglega samvinnu. Starfsánægja er mikil og starfsmannavelta lítil, þetta er því dýrmætt tækifæri fyrir sjúkraliða til að kynnast öflugri teymisvinnu í þverfaglegu umhverfi. Síðastliðin ár hefur mikil uppbygging verið í starfseminni, þjálfunarsundlaug verið endurgerð og hannaður meðferðargarður við húsið. Glæsileg nýbygging verður opnuð árið 2027 og verður öll aðstaða þar eins og best verður á kosið.
Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
- Hjúkrun einstaklinga í endurhæfingu í samvinnu við aðra fagaðila
- Virkur þátttakandi í teymisvinnu
- Þátttaka í verkefnavinnu tengdri hjúkrun ákveðinna sjúklingahópa
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Starfamerking: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, endurhæfing, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5