Sérfræðilæknir í nýburalækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í nýburalækningum á Barnaspítala Hringsins. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. maí 2025 eða eftir samkomulagi.
Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinganna, með gildi Landspítala um umhyggju, fagmennsku, öryggi og framþróun að leiðarljósi. Samskipti sem byggja á virðingu og stuðningi við börnin og fjölskyldur þeirra er mikilvægur þáttur í starfsemi Barnaspítalans.
- Þátttaka í starfi nýburalækna á vökudeild Barnaspítala Hringsins, þ.m.t. húsvöktum samkvæmt vaktafyrirkomulagi
- Umönnun og eftirlit nýbura á kvennadeild Landspítala
- Nýburaskoðun og eftirfylgd með börnum á göngudeild Barnaspítala
- Sjúkraflutningar nýbura
- Skipulag og þróun umbótaverkefna og verkferla
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni í samráði við yfirlækni
- Íslenskt sérfræðileyfi í nýburalækningum
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Vilji og hæfni til að starfa í þverfaglegu teymi
- Stjórnunar- og leiðtogafærni tengt m.a. umbótaverkefnum og þróun/ innleiðingu verkferla
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvisa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5