Læknir í transteymi fullorðinna
Ert þú læknir með áhuga á kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu?
Vilt þú vera hluti af teymi þar sem mikill áhugi og samvinna eru ríkjandi?
Landspítali leitar að framsæknum og áhugasömum lækni til starfa í transteymi fyrir fullorðinna með stuðningi sérfræðilæknis með sérþekkingu í kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu. Þekking á málaflokknum er æskileg en fyrst og fremst áhugi til að læra og þróast í starfi. Þessi staða er afskaplega gefandi starf með áherslu á velferð trans samfélagsins.
Við bjóðum upp á aðgengi að alþjóðlegri þjálfun, ráðstefnum, sérfræðistuðningi og tækifærum á að byggja upp alþjóðlegt tengslanet. Þetta er einstakt og spennandi tækifæri til að halda áfram því starfi sem liggur að baki tilurðar kynstaðfestandi þjónustu fyrir fullorðna á Íslandi. Mikil samvinna er einnig við hagsmunasamtök og mörg tækifæri til samþættingar innan heilbrigðiskerfisins og innan samfélagsins.
Starfshlutfall er allt að 50%, dagvinna og er starfið laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Boðið er upp á:
- Þjálfun og aðlögun í starfi
- Tækifæri til að hafa áhrif á starfsemi sem er í stöðugri framþróun
- Starfsumhverfi sem einkennist af virðingu, fagmennsku og teymisvinnu
- Tækifæri til þátttöku í rannsóknum á þessu sviði læknavísinda þar sem hröð framþróun á sér stað
- Samvinna við hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga, félagsráðgjafa og aðra sérfræðilækna innan teymisins
- Samstarf við erlenda sérfræðilækna og aðgang að nýjustu þekkingu á sviðinu
- Virk þátttaka í þróun og eflingu þjónustunnar með samvinnu við hagsmunahópa og fræðimenn innanlands og alþjóðlega
- Reynsla af teymisvinnu og/ eða áhugi á þverfaglegu samstarfi
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
- Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði og sérfæðileyfi í almennum lyflækningum, innkirtlalækningum, heimilislækningum, geðlækningum eða annarri sérgrein lækningar er æskilegt
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Nánari upplýsingar veita:
- Rafn Benediktsson, forstöðulæknir, rafnbe@landspitali.is
- Elizabeth H. Mcelrea, yfirlæknir Transteymis fullorðinna, elizabemc@landspitali.is
- Sigríður J. Bjarnadóttir, teymisstjóri Transteymis fullorðinna, sigridub@landspitali.is
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Læknir, sérfræðílæknir, transteymi, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5