Líffræðingur eða sameindalíffræðingur á sameindameinafræðideild
Við sækjumst eftir metnaðarfullum líffræðingi sem hefur áhuga á að vinna við þjónustugreiningar á krabbameinsæxlum og öðrum sýnum sem byggja á aðferðum sameindalíffræðinnar. Upphaf ráðningar er samkomulagsatriði en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Rannsóknastofa í sameindameinafræði er hluti af meinafræðideild og starfa þar aðallega lífeindafræðingar, meinafræðingar og líffræðingar, alls um 40 einstaklingar. Á rannsóknastofunni okkar sjáum við um klínískar þjónusturannsóknir á æxlum sem byggja á sameindalíffræðilegum aðferðum. Niðurstöður rannsóknanna eru nýttar til sjúkdómsgreininga og ákvarðanatöku um meðferð sjúklinga. Einnig eru unnar rannsóknir á blóðsýnum við greiningar á faðerni.
Auk fjölbreyttra þjónusturannsókna eru stundaðar vísindarannsóknir á tilurð og framvindu krabbameina og áhrif stökkbreytinga á meðferð sjúklinga.
Í leit okkar að nýjum liðsmanni leggjum við því áherslu á bakgrunn í sameindalíffræði og reynslu og áhuga á krabbameinsfræðum og vísindarannsóknum.
- Undirbúningur og framkvæmd þjónusturannsókna sem byggjast aðallega á háhraðaraðgreiningum en einnig öðrum aðferðum sameindalíffræðinnar
- Skráning upplýsinga í tengslum við móttekin sýni og niðurstöður rannsókna
- Umsjón og þátttaka í daglegum rekstri rannsóknastofunnar
- Þátttaka í vísindastarfi
- Nákvæmni, vandvirkni og skipulögð vinnubrögð
- Sjálfstæði, jákvæðni og lausnamiðaður hugsunargangur
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
- Íslenskt starfsleyfi á heilbrigðissviði sem líffræðingur er kostur
- Meistarapróf í sameindalíffræði er kostur
- Reynsla af þjónusturannsóknum sem byggja á sameindalíffræðilegum aðferðum þ.m.t. háhraðaraðgreiningum er kostur
- Góð kunnátta í Office pakkanum, sérstaklega Excel og sambærilegum forritum, er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, líffræðingur, sameindalíffræðingur,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska