Sérfræðilæknir í æðaþræðingum og inngripsröntgen
Landspítali leitar eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni, með sérhæfingu í myndgreiningu, í krefjandi starf við æðaþræðingar og inngripsröntgen. Um fullt starf er að ræða eða eftir nánara samkomulagi og er starfið laust í maí 2025 eða samkvæmt samkomulagi.
Við æðaþræðingar og inngripsröntgen starfar samhentur þverfaglegur hópur í nánu samstarfi við fagaðila innan og utan Landspítala. Á einingunni er góður starfsandi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, sveigjanleika, stuðning, metnað og jákvæðan liðsanda.
- Í starfinu felast greiningar, inngrip og meðferð út frá rannsóknaraðferðum deildarinnar
- Ráðgjöf og samráð við fagaðila innan og utan Landspítala
- Skipulag og verkefnaumsjón
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu
- Þátttaka í vöktum sérgreinarinnar skilyrði
- Íslenskt sérfræðileyfi í myndgreiningu
- Undirsérgrein í myndgreiningu rannsóknarinngripa æskileg
- Breið þekking og reynsla i öllum helstu rannsóknaraðferðum myndgreiningar
- Reynsla af rannsóknarinngripum s.s. ástungum vegna sýnatöku og dreninnlagna er æskileg
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,