Sérfræðilæknir í brjóstaskurðlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í skurðlækningum með undirsérgreinina brjóstaskurðlækningar. Starfshlutfall er 60-100% og veitist starfið frá 1. september 2025 eða eftir nánari samkomulagi. Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd við sjúklinga okkar.
Við sérgreinina starfar hópur sérfræðilækna í öflugu þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans. Sérgreinin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun.
- Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni, m.a. þátttaka í samráðskvaðningum, göngudeildarþjónustu og vaktþjónustu
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni
- Þátttaka í öðrum verkefnum í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar
- Íslenskt sérfræðileyfi í almennum skurðlækningum
- Almenn reynsla í greiningu og meðferð sjúkdóma sérgreinarinnar
- Þekking og reynsla af ákvörðunartökum á samráðsfundum brjóstameina
- Þekking og reynsla í brjóstaskurðlækningum er skilyrði
- Reynsla í oncoplastiskum brjóstaaðgerðum þ.m.t. brjóstaminnkunum er æskileg
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Reynsla í kennslu- og vísindavinnu er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5