Fagaðili í bráða- og ráðgjafarþjónustu geðþjónustu
Spennandi starf í bráða- og ráðgjafarþjónustu geðþjónustu Landspítala við Hringbraut er laust til umsóknar. Við leitum eftir hjúkrunarfræðingi eða félagsráðgjafa með einlægan áhuga á að sinna fólki með geðrænan vanda.
Starfsemin einkennist af öflugri þverfaglegri teymisvinnu og starfið felur í sér mikil samskipti, sjálfsstæði og fjölbreytni. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og á deildinni eru ótalmörg tækifæri til að vaxa í starfi og dýpka þekkingu sína og færni sem öflugur sjálfstæður fagaðili. Markviss stuðningur er í upphafi starfs sem aðlagað verður að sérfræðiþekkingu og menntun þess sem ráðinn verður.
Starfsemi bráðamóttöku geðdeildar er fjórþætt:
- Bráðamóttaka sjúklinga sem eiga við bráð geðræn veikindi að stríða
- Skammtíma eftirfylgd eftir komu í bráðaþjónustu
- Ráðgjafaþjónusta fyrir bráðamóttöku í Fossvogi
- Ráðgjafaþjónusta fyrir vefrænar deildir Landspítala
Starfshlutfall er 80-100% og er að mestu um dagvinnu að ræða, helgarvakt u.þ.b. sjöttu hverja helgi og eina vakt frá kl. 12-20 á viku. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
- Fjölbreytt mats- og meðferðarstarf sem tengist sérhæfingu deildarinnar
- Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi og framþróun í starfsemi deildarinnar
- Virk þátttaka í fræðslustarfi
- Sérverkefni sem tengjast starfi deildarinnar
- Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur eða félagsráðgjafi
- Faglegur metnaður og áhugi á þjónustu við fólk með bráðan geðrænan vanda
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði og mjög góð samskiptahæfni
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Færni til að hafa góða yfirsýn
- Geta til að vinna undir álagi
- Íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og
starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrun, félagsráðgjöf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5