Aðstoðardeildarstjóri klínískrar lyfjaþjónustu á Landspítala
Lyfjaþjónusta Landspítala auglýsir eftir metnaðarfullum klínískum lyfjafræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra klínískrar lyfjaþjónustu.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu í störfum í almennri lyfjaþjónustu, stjórnun, rekstri, ásamt gæða- og umbótastarfi og vera tilbúinn til að taka þátt í umbreytingu sem fram undan er í starfseminni.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra/forstöðumanni og tekur virkan þátt í stjórnun, þróun á skipulagi, aukinni þjónustu, mannauðsmálum, ásamt innleiðingu nýjunga er stuðla að auknum gæðum, starfsánægju og öryggi sjúklinga.
Leitað er eftir einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni, stjórnunarreynslu, hæfni til að móta jákvætt starfsumhverfi og byggja upp sterka liðsheild. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, eldmóði og hafa áhuga á að starfa með stjórnendum og starfsfólki við að stuðla að framþróun og umbótum í þjónustu sem styður við starfsemi Landspítala.
Lyfjaþjónusta heyrir undir svið Klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu á Landspítala og ber m.a. ábyrgð á öflun og varðveislu lyfja, lyfjablöndun, lyfjaskömmtun, hefur eftirlit með notkun lyfja á spítalanum og veitir ráðgjöf um lyfjatengd mál til starfsfólks og sjúklinga, ásamt því að taka á móti fjölda nema á hverju ári.
Hjá lyfjaþjónustu Landspítala starfa um 100 einstaklingar í samhentri deild og fást þar við fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
- Skipuleggja, stjórna, deila út verkefnum og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, mönnun og rekstri einingar innan lyfjaþjónustu í samráði við næsta yfirmann
- Vera faglegur leiðtogi og bera ábyrgð á verkefnum sem yfirmaður felur
- Styðja vaktstjóra og samstjórnendur í daglegum störfum
- Stuðla að jákvæðum starfsanda, starfsumhverfi og samskiptum við stjórnendur, starfsfólk og skjólstæðinga
- Vera leiðandi í umbóta-, öryggis- og gæðastarfi sem stuðlar að öryggi sjúklinga, bættri þjónustu og framþróun
- Greining á ferlum og gögnum og vinna að umbótatækifærum í samvinnu við stjórnendateymi, gæðastjóra, kennslustjóra og aðra hagaðila
- Er staðgengill næsta yfirmanns eða samstjórnenda eftir þörfum
- Virk þátttaka í stjórnendateymi lyfjaþjónustu og klínísks rannsóknar- og stoðþjónustusviðs í verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauðsmálum
- Íslenskt starfsleyfi lyfjafræðings
- Meistarapróf í klínískri lyfjafræði
- Reynsla af því að starfa sem klínískur lyfjafræðingur á heilbrigðisstofnun ásamt kennslu lyfjafræðinga í sérnámi og lyfjafræðinema í grunnnámi er kostur
- Stjórnunarreynsla og reynsla af rekstri, mannaforráðum, stefnumótun, teymisvinnu og breytingastjórnun í heilbrigðisþjónustu er kostur
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð nálgun
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Fagleg vinnubrögð, afburða skipulagshæfni og reynsla af gerð greininga á árangursvísum, rekstri og starfsemistölum
- Þekking og reynsla af lyfjageiranum og löggjöf varðandi lyfjamál á Íslandi er kostur
- Þekking á þjónustuþáttum Landspítala er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5