Yfirlæknir Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu
Starf yfirlæknis Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar.
Landspítali auglýsir eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum sérfræðilækni sem er reiðubúinn að leiða og efla starfsemi Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu Landspítala ásamt því að tryggja árangursríkt mennta- og vísindastarf. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu, forstöðumann rannsókna- og blóðbankaþjónustu, deildarstjóra og annað starfsfólk.
Um nýtt starf er að ræða þar sem Blóðbankinn og ónæmisfræðideild eru sameinaðar. Verður það því eitt af hlutverkum yfirlæknis að vinna áfram að þeirri sameiningu. Viðkomandi þarf því að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. júlí 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis.
Innan Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu starfar öflugur hópur samhents teymis reyndra starfsmanna sem vinna í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. Næsti yfirmaður er forstöðumaður klínískrar rannsókna- og blóðbankaþjónustu.
- Ber faglega, fjárhagslega og starfsmannaábyrgð innan sameinaðrar deildar í samráði við deildarstjóra
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Tryggir árangursríkt mennta- og vísindastarf innan starfseiningar
- Þróar þjónustu innan ábyrgðarsviðs með áherslu á samhæfingu við aðra starfsemi kjarnans
- Ber læknisfræðilega ábyrgð á starfsemi einingar í samræmi við stefnu Landspítala
- Ber ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð sérgreinar með það að markmiði að hún sé hagkvæm og innan rekstrarviðmiða hvers árs
- Ábyrgðaraðili blóðbankaþjónustu skv. 9. gr. reglugerðar nr. 441/2006 um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs
- Leiðir sameinaða starfsemi inn í Nýjan Landspítala og taka þátt í verkefnum því tengdu
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt sérfræðileyfi í ónæmisfræði, klínískri ónæmisfræði og blóðgjafafræði
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Reynsla af kennslu, vísinda- og nýsköpunarstörfum er kostur
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Jákvætt lífsviðhorf, lausnarmiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumarkandi hugsun.
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi Læknafélags Íslands við ríkið. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni.
- Félagsstörf og umsagnaraðila.
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum.
- Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).
- Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér, vistar það, fyllir út og sendir með umsókn.
- Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.
Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Yfirlæknir, sérfræðilæknir, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5