Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á dagdeild gigtar. Deildin sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga með gigtarsjúkdóma þar sem áhersla er lögð á faglega og persónulega meðferð. Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk þess að eiga auðvelt með að vinna í teymi.
Deildin er staðsett í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5.
Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsmanna með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu. Við leggjum metnað í að veita góða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum deildarinnar.
Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Deildin sinnir göngudeildarþjónustu vegna gigtarsjúkdóma annars vegar og innkirtlasjúkdóma hins vegar. Einnig er starfrækt þar miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma.
- Sérhæfð hjúkrun vegna gigtarsjúkdóma
- Lyfjagjafir í formi innrennslis
- Eftirlit, fræðsla og stuðningur til sjúklinga með gigtarsjúkdóma
- Eftirfylgd sjúklinga í gegnum síma/ fjarþjónustu
- Virk þátttaka í teymisvinnu
- Ráðgjöf til heilbrigðisstarfsmanna
- Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður
- Áhugi á teymisvinnu
- Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Þekking, reynsla og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5