Blóðbankinn auglýsir eftir öflugum liðsauka í vaktavinnu
Blóðbankinn óskar eftir öflugum liðsauka í sinn góða hóp við framleiðslu og þjónustudeild Blóðbankans. Starfshlutfall er 100% og er um að ræða dagvinnu á meðan á þjálfun stendur en vaktavinnu eftir að þjálfun lýkur. Starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Gerð er krafa um háskólamenntun sem uppfyllir kröfur til þess að öðlast starfsleyfi sem náttúrufræðingur í heilbrigðisþjónustu eða lífeindafræðingur.
Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum, afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti. Í Blóðbankanum, sem er eini sinnar tegundar á landinu, starfa um 55 einstaklingar, líffræðingar, lífeindafræðingar, hjúkrunarfræðingar, læknar og skrifstofufólk Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið allra starfsmanna að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Rannsóknir á sýnum
- Afgreiðsla blóðhluta til sjúkrastofnana
- Blóðhlutavinnsla
- Skráning upplýsinga og vinna í gæðakerfi
- Háskólamenntun sem uppfyllir kröfur til þess að öðlast starfsleyfi sem náttúrufræðingur í heilbrigðisþjónustu eða lífeindafræðingur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
- Góð íslenskukunnátta nauðsynleg
- Gott viðmót, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sterkur vilji til að standa sig í skemmtilegu og krefjandi starfi
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, náttúrufræðingur, lífeindafræðingur
Tungumálahæfni: íslenska 4/5