Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar augnsjúkdóma
Við leitum eftir öflugum leiðtoga til að leiða göngudeild augnsjúkdóma Landspítala á Eiríksgötu 5. Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar, við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er æskileg. Starfið er er unnið í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækna og annað starfsfólk.
Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma í landinu og skiptist í göngudeild, dagdeild og skurðstofur. Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhentra starfsmanna.
Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni deildar. Ábyrgðasviðið er þríþætt, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur hjarta- og augnþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júní 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun hjúkrunar á deildinni, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðufólk hjarta- og augnþjónustu
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan hjarta- og augnþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framhaldsmenntun í hjúkrun eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
- Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
- Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
- Hæfni til að leiða teymi
- Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi
- Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 5/5