Sjúkraþjálfari á göngudeild grindarbotnsvandamála
Laus er til umsóknar staða sjúkraþjálfara á göngudeild grindarbotnsvandamála sem staðsett er í sjúkraþjálfun á Landspítala við Hringbraut. Starfshlutfall er 50-70% og er upphaf starfa 1. maí 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Á göngudeild grindarbotnsvandamála fer fram fjölbreytt en sérhæfð endurhæfing fyrir skjólstæðinga með vandamál í grindarbotni og mjaðmagrind hvort sem þeir koma að heiman eða eru inniliggjandi. Boðið verður upp á sérhæfða, markvissa þjálfun í starfið hjá sjúkraþjálfara í kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfun.
- Skoðun, mat og meðferð vegna vandamála í grindarbotni og mjaðmagrind
- Skráning og skýrslugerð
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegum teymum
- Þátttaka í fagþróun
- Þátttaka í rannsóknum
- Afleysing á legudeildum
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Krafa er um starfsreynsla á fagsviðinu
- Námskeið á fagsviðinu
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraþjálfari, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5,