Sérfræðilæknir í meltingarlækningum - hlutastarf
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í meltingarlækningum eða læknis með sambærilega þjálfun sem nýtist í starfi meltingarlækninga varðandi grindarbotnsvanda og speglanir.
Á meltingarlækningaeiningunni fer m.a. fram uppbygging sérhæfðrar þjónustuteyma í samstarfi við aðrar sérfræðigreinar og fagstéttir, framsækin starfsemi við meltingarvegsspeglanir bæði í greiningar- og meðferðarskyni og metnaðarfullt vísindastarf. Við eininguna gefast tækifæri til að vaxa og þróast áfram í starfi að loknu sérnámi og taka þátt í áhugaverðum verkefnum.
Við sækjumst eftir sérfræðilækni með breiða þekkingu og reynslu af grindarbotnsvanda, sem og af speglunum meltingarvegs. Miðað er við 40% starfshlutfall.
Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
- Vinna á göngudeild meltingarlækninga fyrir sjúklinga með grindarbotnsvanda
- Vinna í þverfaglegu teymi sjúklinga með grindarbotnsvanda
- Vinna á speglanadeild
- Þátttaka í kennslu læknanema og námslækna
- Þátttaka í vísindastarfi
- Íslenskt sérfræðileyfi í meltingarlækningum eða almennum skurðlækningum, með sérþjálfun í meðferð sjúklinga með grindarbotnsvanda
- Góð hæfni í speglun meltingarvegar
- Reynsla af kennslu
- Reynsla og áhugi á klínískum rannsóknum mikils metin
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 2/5,