Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun á göngudeild lyflækninga A3 í Fossvogi með áherslu á skjólstæðinga með langvinna lungna- og öndunartengda sjúkdóma og fjölskyldur þeirra. Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk, auk klínískra starfa, er ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsóknar- og þróunarvinnu. Enn fremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.
Á göngudeild A3 er fjölbreytt og sérhæfð starfsemi og þar starfa um 50 einstaklingar á níu sérhæfðum einingum. Á göngudeildina koma sjúklingar í viðtal og eftirlit til lækna, hjúkrunarfræðinga og annars fagfólks m.a. vegna lungna-, ofnæmis- og smitsjúkdóma í kjölfar sjúkrahúslegu, í reglulegt eftirlit vegna langvinnra eða alvarlegra sjúkdóma og í ýmsar rannsóknir og meðferðir. Góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til vaxtar í starfi. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum.
Ráðið er í starfið 15. júní 2025 eða skv. nánara samkomulagi.
- Þróun hjúkrunar og þjónustu innan sérgreinar
- Frumkvæði og innleiðing nýrra verkferla
- Kennsla og fræðsla
- Ráðgjöf til sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna
- Rannsóknir og gæðastörf
- Klínísk störf eftir atvikum
- Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun
- Íslenskt sérfræðileyfi í hjúkrun
- Starfsreynsla í hjúkrun
- Leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Reynsla af teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðingur í hjúkrun, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5