Sérfræðilæknir í almennum lyflækningum
Landspítali auglýsir eftir öflugum sérfræðilæknum í almennum lyflækningum til að taka þátt í og leiða áframhaldandi uppbyggingu almennra lyflækninga og bráðalyflækninga.
Almennar lyflækningar og bráðalyflækningar hafa þróast hratt á Landspítala undanfarinn áratug. Nú er veitt fullt sérnám í almennum lyflækningum og starfar við fagið breiður og metnaðarfullur hópur námslækna og sérfræðilækna. Bráðalyflækningadeild hefur verið starfrækt um árabil, ásamt því að bráðadagdeild er í örri þróun samhliða gagngerri endurskoðun bráðaþjónustu þjóðarsjúkrahússins. Samstarf við nærliggjandi heilbrigðisstofnanir mun einnig aukast og munu ráðnir sérfræðilæknar hafa leiðandi hlutverk í þeirri uppbyggingu og þannig styrkingu fagsins á landsvísu.
Störf sérfræðilækna almennra lyflækninga eru þannig mjög fjölbreytt, ásamt því að hér er um að ræða einstakt tækifæri til starfsþróunar og þátttöku í mikilvægri uppbyggingu einnar lykilstoða íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Verkefnin hér skiptast milli starfa á bráðalyflækningadeildum Landspítala, bráðadagdeild Landspítala, undirsérgreinum að eigin vali innan Landspítala.
Þeir umsækjendur sem ráðnir verða geta hafið störf strax eða eftir frekara samkomulagi.
- Vinna á legudeildum og bráðadagdeild
- Vinna í innlagnateymi almennra lyflækninga
- Vinna innan undirsérgreinar lyflækninga skv. vali
- Þátttaka í vaktþjónustu almennra lyflækninga
- Þátttaka í kennslu læknanema og sérnámslækna
- Þátttaka í rannsóknarstarfi
- Þátttaka í gæða- og umbótastörfum.
- Þátttaka í uppbyggingu bráðalyflækninga og almennra lyflækninga
- Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum
- Breið þekking og reynsla í faginu
- Brennandi áhugi á áframhaldandi uppbyggingu almennra lyflækninga og bráðalyflækninga á Íslandi
- Góðir samskiptahæfileikar
- Góð reynsla og hæfni til að vinna í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5