Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Bráðalyflækningadeild A2
Laust er til umsóknar starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi frá 1. maí 2025 eða eftir samkomulagi. Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi sem hefur brennandi áhuga á hjúkrun, stjórnun ásamt gæða- og umbótastarfi.
Bráðalyflækningadeild sinnir breiðum hópi sjúklinga með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Deildin er 19 rúma lyflækningadeild þar sem hjúkrunarviðfangsefnin eru mjög fjölbreytt. Á deildinni starfar öflugur og samhentur hópur í þverfaglegum teymum og markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Góður starfsandi ríkir sem og metnaður. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Mikið er lagt upp úr þverfaglegri teymisvinnu.
- Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
- Þátttaka í stjórnendateymi bráðalyflækningadeildar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauðsmálum
- Vinnur náið með deildarstjóra að mótun liðsheildar
- Ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
- Afleysing deildastjóra eftir þörfum
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
- Stjórnunarreynsla er æskileg
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
- Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
- Þekking á þjónustuþáttum Landspítala
- Þekking á verkefnastjórnun og umbótastarfi er æskileg
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Aðstoðardeildarstjóri, Hjúkrunarfræðingur,stjórnunarstarf, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5