3. og 4. árs hjúkrunarnemar - spennandi tækifæri á lungnadeild!
Ertu góður liðsfélagi og langar þig að starfa í spennandi starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi?
Okkur vantar fleiri hjúkrunarnema í okkar góða lið á lungnadeild í Fossvogi. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði.
Lungnadeild er bráðalegudeild með hágæslurýmum og eina sérhæfða lungnadeildin á landinu. Þjálfun og fræðsla er í fyrirrúmi á deildinni og mörg námstækifæri. Á deildinni starfa um 70 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Starfsandi á deildinni er mjög góður og tekið vel á móti nýju samstarfsfólki. Við leggjum okkur fram við að þjónustan við skjólstæðinga okkar sé til fyrirmyndar, öryggi þeirra sé tryggt og að þeim sé sýnd hlýja og umhyggja.
- Að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra sem leita til lungnadeildar til greiningar, rannsókna og/ eða meðferðar vegna öndunarfæraeinkenna eða annarra sjúkdóma
- Unnið er undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga og mikil tækifæri til þjálfunar og að öðlast reynslu í hjúkrun bráðveikra sem og langveikra sjúklinga
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Hjúkrunarnemi á 3.-4. ári
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5