Hjúkrunarfræðingur á öldrunarlækningadeild L4 á Landakoti
Öldrunarlækningadeild C, L4 á Landakoti er sérhæfð meðferðar- og endurhæfingadeild opin sjö daga vikunnar. Starfsemin miðar að þjónustu við sjúklinga með heilabilunarsjúkdóma. Meginmarkmiðið er að auka lífsgæði með því að skapa öryggi og veita umhyggju í rólegu umhverfi þar sem þjónusta við sjúklinga og fjölskyldu byggir á þekkingu og framþróun.
Meðferðin miðar að því að auka hæfni einstaklings til að takast á við breyttar aðstæður og viðhalda vitrænni og líkamlegri færni. Í samvinnu við einstaklinga og aðstandendur er leitað lausna sem hæfa hverjum og einum.
Góður starfsandi er ríkjandi á deildinni og tækifæri eru til að vaxa í starfi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir sem getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur Landspítala
- Hjúkrun, ráðgjöf og stuðningur til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,