Almennur læknir - Hefur þú áhuga á myndgreiningu?
Landspítali óskar eftir að ráða almennan lækni sem hefur áhuga á að kynna sér störf á myndgreiningu. Starfshlutfall er 100% og um tímabundið starf er að ræða til 12 mánaða. Starfið er laust frá 1. ágúst 2025.
Við myndgreiningu starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegum teymum og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun í starfi.
- Þjálfun í myndgreiningu með þátttöku í framkvæmd og úrlestri á myndgreiningarrannsóknum á myndgreiningardeild og einnig á inngrips- og æðaþræðingardeild
- Þáttaka í vöktum á myndgreiningardeild
- Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna
- Kennsla sérnámsgrunnslækna, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á
- Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
- Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
- Íslenskt lækningaleyfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Öguð vinnubrögð
- Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, læknir, læknir með lækningaleyfi