Aðstoðarmaður á vélaverkstæði - Tæknideild Landspítala
Tæknideild Landspítala leitar að ábyrgum og áhugasömum einstaklingi til að gegna fjölbreyttu starfi aðstoðarmanns á vélaverkstæði spítalans. Starfið felur í sér þátttöku í viðhaldi og rekstri margvíslegra búnaðar og kerfa innan umfangsmikilla starfsemi Landspítala.
Á vélaverkstæðinu starfa sjö starfsmenn sem vinna náið saman að fjölbreyttum verkefnum tengdum viðhaldi, uppsetningu og endurbótum á vélbúnaði. Um er að ræða spennandi starf í sérhæfðu umhverfi þar sem mikil áhersla er lögð á öryggi, nákvæmni og samstarf.
Landspítalinn er um 170.000 fermetrar og inniheldur mikla tæknilega innviði þar sem vélbúnaður gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi. Um er að ræða 100% starf og er það laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
- Aðstoð við vélfræðinga/vélvirkja í daglegum verkefnum
- Aðstoð við fyrirbyggjandi viðhald á búnaði samkvæmt viðhaldskerfi spítalans
- Aðstoð við skráningu og eftirfylgni með bilanatilkynningum og viðhaldsverkefnum
- Tiltekt og skipulag á efnislager vélaverkstæðis
- Flutningur á búnaði, tækjum og efni milli bygginga/starfsstöðva spítalans
- Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri og starfsemi vélaverkstæðisins
- Þekking eða reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð kunnátta í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Góð færni í samskiptum og skipulagi
- Vandvirkni og öryggisvitund í vinnubrögðum
- Gilt ökuskírteini er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Tungumálakunnátta: Íslenska 4/5, enska 3/5
Starfsmerkingar: Iðnaðarstörf, verkstæði