Yfiriðjuþjálfi á Grensási
Landspítali leitar eftir kraftmiklum og skipulögðum iðjuþjálfa í starf yfiriðjuþjálfa á Grensási. Viðkomandi þarf að hafa afburða samskipta- og leiðtogahæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Starfið felur í sér skipulag og stjórnun á fjölbreyttri starfsemi á Grensási í nánu samstarfi og umboði yfiriðjuþjálfa Landspítala, auk klínískra starfa.
Einstaklingar sem koma í endurhæfingu á Grensási eftir slys eða veikindi eiga flestir í erfiðleikum með að takast á við sitt daglega líf. Sérþekking iðjuþjálfa felst í því að greina styrkleika einstaklinga og hvað reynist þeim erfitt við dagleg verk, finna leiðir til að yfirstíga þessa erfiðleika og þjálfa aftur upp færni til að takast á við daglegt líf.
Næsti yfirmaður er yfiriðjuþjálfi Landspítala. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi og unnið er í dagvinnu. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
- Starfsmannamál og rekstur í umboði yfiriðjuþjálfa Landspítala
- Skipuleggur iðjuþjálfun á starfsstöð í samræmi við stefnu, gildi og markmið Landspítala
- Hvetur til rannsókna og vísindastarfs í iðjuþjálfun í samráði við yfiriðjuþjálfa Landspítala
- Er yfiriðjuþjálfa Landspítala til ráðgjafar/ aðstoðar í stefnumótun, faglegri þróun og gæðastarfi í iðjuþjálfun
- Stjórnar innleiðingu og aðlögun klínískra leiðbeininga að starfsemi iðjuþjálfunar á starfsstöð
- Sinnir klínískum störfum
- Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum sem og teymisvinnu
- Áhugi og reynsla af stjórnun, umbóta- og gæðastarfi
- Viðbótarnám sem nýtist í starfi æskilegt
- Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
- Skipulagshæfileikar og frumkvæði í starfi
- Reynsla á sviði iðjuþjálfunar í endurhæfingu skilyrði
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Starfamerking: Iðjuþjálfun, stjórnun, endurhæfing