Hjúkrunarfræðingur á göngudeild taugasjúkdóma A3 Fossvogi
Við auglýsum eftir hjúkrunarfræðingum til starfa á göngudeild taugasjúkdóma. Á göngudeildinni gefst tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma með góðum hópi samstarfsfólks. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Það er mjög góð samvinna og teymisvinna með sérfræðilæknum einingarinnar og öðrum fagstéttum.
Á deildinni er veitt sérhæfð, þverfagleg göngudeildarþjónusta við sjúklinga með ýmsa taugasjúkdóma á borð við blóðrásartruflanir í heila, hreyfitaugungahrörnun (MND), heila- og mænusigg (MS), flogaveiki og Parkinsonsjúkdóm.
Upphaf starfa er samkomulag.
- Sérhæfð hjúkrun, fræðsla, stuðningur og eftirfylgd sjúklinga með taugasjúkdóma
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu á göngudeild
- Fræðsla og kennsla til sjúklinga, aðstandenda og annars heilbrigðisstarfsfólks
- Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan einingar
- Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sjálfstæði, frumkvæði og faglegur metnaður
- Tilbúin(n) að takast á við breytingar
- Áhugi á teymisvinnu
- Íslenskukunátta
- Reynsla af hjúkrun taugasjúklinga er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5