Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Við óskum eftir að ráða jákvæðan og þjónustulipran starfskraft með ríka samskipta- og samstarfshæfni til starfa á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Starfið er fjölbreytt og felst m.a. ræstingum á skurðstofum og skurðstofugangi, þrifum á svæfingarvélum og búnaði, áfyllingum og öðrum tilfallandi verkefnum. Unnið er í teymi og krefst því starfið teymisvinnu, sveigjanleika og skipulagðra vinnubragða. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu og er lágmarksaldur umsækjanda 18 ár. Starfið felur í sér vaktavinnu, unnið er á morgunvöktum (8-17 og 12-20), kvöldvöktum (15-23) og næturvöktum (20-8). Einnig er unnið á helgarvöktum, tvískiptar 12 tíma vaktir, ásamt bakvöktum. Ráðið er í starfið sem fyrst, eða eftir nánari samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Þar starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi og er starf sérhæfðs starfsmanns mikilvægur hlekkur í góðri þjónustu við sjúklinga. Starfsemi fer fram á skurðstofum 12cd, skurðstofum 23a og á útstöðvum.
- Ræsting á skurðstofum og skurðstofugangi
- Þrif á svæfingarvélum og búnaði
- Áfyllingar á svæfingarborð
- Pöntun og frágangur á líni
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
- Rík þjónustulund og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð í vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta er áskilin
- Stundvísi og áreiðanleiki
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérhæfður starfsmaður, þjónustustörf, ræstingar, þrif
Tungumálahæfni: íslenska 3/5