Starfsmaður í býtibúr
Við óskum eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling, með ríka samskipta- og samstarfshæfni, í býtibúr á meltingar- og nýrnadeild að Hringbraut. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Unnið er í dagvinnu virka daga kl. 8:00-15:12 og eina til tvær helgar í mánuði. Starfshlutfall er 80%.
Meltingar- og nýrnadeild er 19 rúma bráðalegudeild sem sinnir sjúklingum með bæði bráða og langvinna sjúkdóma í meltingarfærum og nýrum auk annarra sjúkdóma á sviði bráðra lyflækninga. Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða aðlögun. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Guðrúnu Yrsu deildarstjóra.
- Umsjón með býtibúri
- Aðstoða við máltíðir sjúklinga
- Pantanir og frágangur á vörum
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Góð samskiptahæfni
- Þjónustulund og jákvæðni
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, eldhússtörf
Tungumálahæfni: íslenska 3/5