Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - hlutastörf með námi á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við óskum eftir að ráða 1.- 4. árs hjúkrunarnema í hlutastörf með skóla á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG við Hringbraut. Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Hjúkrunarnemar fá markvissan stuðning samhliða starfi á deildinni. Um vaktavinnu er að ræða og ráðið er í störfin sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu. Við bjóðum einstaklingsmiðaða aðlögun eftir þörfum hvers og eins með áherslu á fagmennsku og starfsþróun.
Á deildinni starfar kraftmikill hópur tæplega 100 starfsmanna, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sérhæft starfsfólk. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
- Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróun og umbótum
- Hjúkrunarnemi á 1.- 4. ári
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun bæklunarsjúklinga og annarra sjúklinga sem á deildinni dvelja
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi, hjúkrun, teymisvinna.
Tungumálakunnátta: Íslenska 3/5