Hjúkrunarfræðingur í heimaöndunarvélateymi
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í heimaöndunarvélateymi Landspítala (HÖT) á göngudeild A3 í Fossvogi. Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með áhuga á krefjandi verkefnum.
HÖT er þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðinga og lækna sem hafa sérþekkingu á sviði lungnasjúkdóma og öndunarbilunar sem er meðhöndluð með ytri eða innri öndunarvél. Teymið kemur að mati, greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga og fjölskyldna þeirra bæði innan spítala og í heimahúsum. Náið samstarf er við deildir Landspítala sem og umönnunaraðila og starfsfólk annarra heilbrigðisstofnana.
Starfshlutfall er 50-70%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Viðkomandi fær góða starfsaðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum teymisins.
- Fræðsla og stuðningur til sjúklinga sem þurfa á að halda öndunarvélameðferð heimavið
- Þátttaka í skipulagðri fræðslu til sjúklinga, aðstandenda og umönnunaraðila
- Virk þátttaka í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
- Þátttaka í teymisvinnu
- Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að starfa í teymi
- Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Reynsla af hjúkrun bráðveikra er kostur
- Reynsla af hjúkrun lungnasjúklinga er kostur
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni 4/5