Hjúkrunarfræðingur, átröskunarteymi barna- og unglingageðdeildar
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á göngudeild barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL). Um er að ræða starf í þverfaglegu teymi á göngudeild. Á göngudeild er unnið í dagvinnu.
Á BUGL er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð geðheilbrigðisþjónusta við börn að 18 ára aldri. Unnið er í þverfaglegum teymum og er mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi.
Á BUGL starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar.
- Starfar í þverfaglegu teymi að umönnun, greiningu og meðferð barna með átröskunar vanda.
- Fjölskylduvinna er einn lykilþátta starfsins.
- Tekur þátt í gerð, framkvæmd og endurmati einstaklingshæfðra meðferðaráætlana í samvinnu við fjölskyldur.
- Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.
- Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af meðferðarstörfum
- Brennandi áhugi á veitingu geðheilbrigðisþjónustu við börn og fjölskyldur
- Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
- Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og frumkvæði
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
- Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
- Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
- Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi, sem eiga íslensku ekki að móðurmáli, er kostur
- Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5,