Yfirsjúkraþjálfari við sjúkraþjálfun á Landakoti
Landspítali leitar eftir kraftmiklum og skipulögðum sjúkraþjálfara í starf yfirsjúkraþjálfara á Landakoti. Starfið felur í sér skipulag og stjórnun fjölbreyttrar starfsemi sjúkraþjálfunar á Landakoti í nánu samstarfi og umboði yfirsjúkraþjálfara Landspítala auk klínískra starfa. Viðkomandi þarf að hafa afburða samskipta- og leiðtogahæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Starfið er laust frá 1. nóvember 2024.
Á Landakoti fer fram mat, meðferð og endurhæfing aldraðra. Mikið er lagt upp úr þverfaglegu samstarfi. Í sjúkraþjálfun á Landakoti starfa um 20 einstaklingar og er lögð áhersla á náið samstarf fagstétta. Rík áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju starfsfólki.
- Starfsmannamál og rekstur í umboði yfirsjúkraþjálfara Landspítala
- Skipuleggur sjúkraþjálfun á starfsstöð í samræmi við stefnu, gildi og markmið Landspítala
- Hvetur til rannsókna og vísindastarfs í sjúkraþjálfun í samráði við yfirsjúkraþjálfara Landspítala
- Er yfirsjúkraþjálfara Landspítala til ráðgjafar/ aðstoðar í stefnumótun, faglegri þróun og gæðastarfi í sjúkraþjálfun á Landspítala
- Sinnir klíniskum störfum
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi og reynsla af stjórnun, umbóta- og gæðastarfi
- Viðbótarnám sem nýtist í starfi æskilegt
- Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
- Jákvætt viðmót, frumkvæði og drifkraftur
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Starfið auglýst 09.09.2024, umsóknarfrestur er framlengdur til og með 04.10.2024.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi
- Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfari, stjórnunarstarf