Leit
Loka

Upplýsingar um málþingið lyf án skaða

Málþing um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferðar
sem haldið verður 7. október 2024
Staðsetning: Háteigur á Hótel Reykjavík Grand, 105 Reykjavík.

Dagskrá

Þátttakan er gjaldfrjáls og boðið verður upp á léttan hádegisverð og kaffi.

Athugið að sætaframboð er takmarkað. Þátttakendur, sem hafa fengið boð á málþingið, eru hvattir til að skrá sig sem fyrst til að staðfesta mætingu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur taki þátt allan daginn. Þeir sem eingöngu geta mætt hluta úr degi eru vinsamlegast beðnir um að taka þátt í gegnum streymi. Viðburðurinn verður auk þess í beinni útsendingu á Youtube.

Málþingið er ætlað hagsmunaaðilum í íslensku heilbrigðis- og velferðarkerfi og þeim sem taka stefnumótandi ákvarðanir hér á landi. Markmið málþingsins er að fylgja eftir tveimur lykilþáttum sem skilgreindir voru á fyrsta málþinginu: að hefja vitundavakningu meðal almennings um lyf og að skilgreina ábyrgð ólíkra haghafa þ.e. heilbrigðistarfsmanna, almennings og einstaklinga sem þurfa að taka lyf.

Skráninguer lokið

Viðburðurinn er styrktur af Heilbrigðisráðuneytinu, Embætti landlæknis, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Lyfjastofnun, Lyfjafræðingafélagi Íslands og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.