OPIÐVirka daga frá 08:00-16:00
Leit
LokaHERA sérhæfð líknarheimaþjónusta Landspítala
HEIMA – EFTIRLIT – RÁÐGJÖF – AÐSTOÐ
Deildarstjóri
Kristjana G. Guðbergsdóttir
kristjgu@landspitali.isYfirlæknir
Arna Dögg Einarsdóttir
arnae@landspitali.isHafðu samband
Hagnýtar upplýsingar
Skrifstofa HERU er opin virka daga frá kl. 08:00-16:00, sími 543 6360.
Eftir kl. 16:00 og um helgar svarar bakvaktarþjónusta bráðatilvikum sem upp koma hjá skjólstæðingum HERU:
- HERA teymi 1, sími 825 5100.
- HERA teymi 2, sími 825 5101.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hera12@landspitali.is
Staðsetning: Kópavogsgerði 4, 200 Kópavogi
- HERA er hjúkrunar- og læknisþjónusta fyrir sjúklinga með langvinna og ólæknandi sjúkdóma.
- HERA sinnir einnig sjúklingum í læknanlegri meðferð sem þarfnast tímabundinnar aðstoðar vegna erfiðra einkenna.
- HERA sinnir sjúklingum á stórhöfuðborgarsvæðinu þeim að kostnaðarlausu.
- HERA er sólarhringsþjónusta sem veitt er í heimahúsum, með símtölum, tölvusamskiptum og á skrifstofu HERU.
- HERU vitjanir og önnur samskipti eru ákveðin í samráði við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og fara eftir þörfum hverju sinni.
- Læknar HERU eru jafnframt læknar líknardeildar, þeir eru á sólarhringsbakvakt. Einkennamat og meðferð læknis fer fram á göngudeild eða með heimavitjun.
- Starfsfólk HERU er í nánu samstarfi við aðra meðferðaraðila sjúklinga.
- Hjúkrunarfræðingar HERU hafa víðtæka reynslu innan líknarmeðferðar, þ.á. m. í fjölskylduhjúkrun og ráðgjöf.
- HERA styður við þá sem kjósa að deyja heima og aðstandendur þeirra.
Sjá einnig upplýsingarit:
Sótt er um þjónustu HERU með tilvísun í Heilsugátt
Hjúkrunarfræðingar og læknar HERU bjóða meðal annars upp á eftirfarandi þjónustu:
- Eftirlit með einkennum.
- Meðferð við einkennum.
- Einkennamat og meðferð hjá læknum HERU á göngudeild eða heima.
- Lyfjatiltekt, lyfjapöntun og lyfjagjafir.
- Fræðslu, stuðning og ráðgjöf.
- Fjölskyldu- og einstaklingsviðtöl.
- Aðstoð vegna hjálpartækja og fyrirkomulags heima.
- Tengingu við lækna og aðra fagaðila.
- Mat á þjónustuþörf og samhæfingu þeirrar þjónustu sem er í boði.
- Stuðning við þá sem kjósa að deyja heima og aðstandendur þeirra.
Í samstarfi við heimahjúkrun veitir HERA:
- Aðstoð við aðhlynningu.
- Sárameðferð.
- Umhirðu á þvagleggjum, drenum og stóma.
Hægt er að styrkja starfsemi HERU á margan hátt, m.a. með því að kaupa minningarkort líknardeildar og HERU, sérhæfðrar líknarheimaþjónustu Landspítala.