Rjóður
Rjóður er hjúkrunar- og endurhæfingardeild fyrir langveik og langveik fötluð börn.
Hafðu samband
Hér erum við
Kópavogsgerði 6a, Kópavogi
Hagnýtar upplýsingar
Rjóður er hjúkrunar- og endurhæfingardeild fyrir langveik og langveik fötluð börn. Þangað koma börn á aldrinum 0-18 ára sem þarfnast mikillar hjúkrunar og umönnunar.
Rjóður er hluti af kvenna og barnaþjónustu Landspítala.
- Í Rjóðri starfar hjúkrunarfræðingar, þroskaþjálfar, sjúkraliðar og félagsliðar
- Mikið samstarf er við Barnaspítala Hringsins
Öll börn sem koma ný í Rjóður fá skipulagða aðlögun. Það fer eftir þörfum hverrar fjölskyldu hversu aðlögun er löng. Skipulagðar innlagnir eru ákveðnar 3 mánuði fram í tímann
Á hverjum tíma dvelja 5-6 börn í Rjóðri auk barna sem koma í dagdeildarþjónustu vegna endurhæfingar. Þetta eru oftast börn sem legið hafa á Barnaspítala Hringsins vegna alvarlegra slysa og sjúkdóma og þurfa endurhæfingu og þjálfun áður en þau geta farið heim. Þessi börn eru oftast í sólarhringsþjónustu fyrst í stað.
Helsti bakhjarl Rjóðurs er Jón Gunnar Geirdal en hann hefur í gegnum árin stutt við bakið á Rjóðri með ýmsum stórum og smáum verkefnum.
Lionshreyfingin og Lionsklúbbur Kópavogs eru einnig tryggir bakhjarlar.
En auk þessa nýtur Rjóður stuðnings fjölda félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga. Má þar nefna Svölurnar, Thorvaldsensfélagið, Kvenfélagið Hringinn, Oddfellow regluna ásamt fleirum.
Viltu styrkja Rjóður?
Ef áhugi er á að styrkja Rjóður í formi peninga eða tækja er hægt að hafa samband við deildarstjóra í síma 543-9261 eða senda póst á netfangið hennyh@landspitali.is.
Þegar barn hefur fengið jákvætt svar um hvíldarinnlögn hefst aðlögun. Mikilvægt er að fá nákvæmar og góðar upplýsingar um barnið og fjölskylduna.
Lengd aðlögunar fer eftir þörfum hverrar fjölskyldu.
Sjúkdómsgreiningar barnanna er marvíslegar en aðallega:
- Heila og taugasjúkdómar
- Vöðvasjúkdómar
- Ýmsir sjaldgæfir sjúkdómar
- Næringarvandamál
Samstarf er við Barnaspítala Hringsins. Rjóður er hluti af taugateymi Barnaspítalans. Ef börnin veikjast í Rjóðri eru þau send á bráðamóttöku og eins tekur Rjóður á móti langveikum börnum og börnum sem þurfa mikla endurhæfingu frá spítalanum.
Samstarf er við Endurhæfingu ehf sem er staðsett á lóð Landspítala Kópavogi. Sjúkraþjálfarar þar sinna börnum sem koma utan að landi til dvalar í Rjóðri.
Þverfagleg vinna: Samstarf er á milli Ráðgjafar- og greiningarstöðvar ríkisins þar sem fagfólk, sjúkraþjálfarar, foreldrar og stoðtækjafyrirtæki eru í samvinnu vegna hjálpartækjamála.