Ávarp forstjóra
Okkar frábæri árangur í baráttu við Covid-19 faraldurinn byggir á fjórum hornsteinum; í fyrsta lagi á snemmskimun og smitrakningu. Í öðru lagi á COVID-19 göngudeild spítalans, sem heldur utan um þá sem veikst hafa af COVID-19, með reglubundnu mati og markvissum innlögnum og meðferð sjúkra. Þriðji hornsteinninn er utanumhald um smitvarnarbúnað og annan búnað á landsvísu af Landspítala, með markvissum og snörum innkaupum á varningi sem allur heimurinn var á höttunum eftir. ... Í fjórða lagi þá snýst þetta um opna, heiðarlega og tímanlega upplýsingagjöf til almennings – sem þríeykið góða með hjálp fjölmargra annarra hafði forgöngu um. Sjá meira
Hápunktar samvinnu
DAGSKRÁ
Upptaka á Facebook af ársfundi Landspítala 2021
14:00 Skriðþungi í verkefnum síðustu 12 mánaða á Landspítala: Opnunarmyndskeið
14:05 Ávarp heilbrigðisráðherra: Svandís Svavarsdóttir
14:20 Ávarp forstjóra Landspítala: Páll Matthíasson
14:35 Ársreikningur Landspítala: Ólafur Darri Andrason, framkvæmdastjóri fjármála
14:50 Deigla vísindarannsókna á Landspítala (Myndskeið) A. Brynja Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur B. Signý Lea Gunnlaugsdóttir, deildarlæknir C. Þórarinn Gíslason, yfirlæknir.
15:10 Heiðranir starfsfólks: Gunnar Beinteinsson, framkvæmdastjóri mannauðsmála
15:20 Smásjáin: Fimm viðtöl í beinni við lykilfólk í spennandi verkefnum
A. Eiríksstaðir - Framsækin uppbygging klínískrar þjónustu: Lilja Stefánsdóttir
B. ELMA - Verðskulduð veisla fyrir skilningarvitin: Jón Haukur Baldvinsson
C. Landspítalaþorpið og staðan á nýbyggingum við Hringbraut: Benedikt Olgeirsson D. Umhverfismálin í stóru samhengi: Hulda Steingrímsdóttir E. Þróun upplýsingatækni og hugbúnaðar í heimsfaraldri: Björn Jónsson
16:10 Svipmyndir af vinnugleði starfsfólks Landspítala Lokamyndskeið
16:15 Fundarlok
Fundarstjóri: Anna Sigrún Baldursdóttir
Deigla vísindarannsókna - viðtöl (myndskeið)
Brynja Ingadóttir, sérfræðingur í hjúkrun
Signý Lea Gunnlaugsdóttir sérnámslæknir
Þórarinn Gíslason yfirlæknir
Fimm viðtöl í beinni við lykilfólk í spennandi verkefnum (myndskeið)
Lilja Stefánsdóttir: Framsækin uppbygging klínískrar þjónustu
Jón Haukur Baldvinsson: Verðskulduð veisla fyrir skilningarvitin:
Benedikt Olgeirsson: Landspítalaþorpið og staðan í nýbyggingum við Hringbraut
Hulda Steingrímsdóttir: Umhverfismálin í stóru samhengi
Björn Jónsson: Þróun upplýsingatækni og hugbúnaðar í heimsfaraldri
Lykiltölur Landspítala 2010-2020
Gröf: KLÍNÍSK STARFSEMI - REKSTUR - MANNAUÐUR - GRÆNT BÓKHALD
Fara efst á síðuna
Hér fyrir neðan er fjöldi frétta í texta og myndskeiðum sem tengjast starfsemi Landspítala á árinu 2020 og birtust á vef spítalans.
Starfsemi á Landspítala nýtur þess að á hverju ári koma einstaklingar eða fulltrúar fyrirtækja og stofnana færandi hendi. Gjafir, smáar sem stórar, vitna um góðan hug til Landspítala og þær koma sér alltaf vel. Verðmæti gjafa nemur hundruðum milljóna króna á hverju ári.
Hér er sagt frá nokkrum af þeim fjölmörgu gjöfum og styrkjum sem spítalanum voru færðar á árinu 2020. Það er líka hægt að styrkja starfsemina með því að kaupa minningarkort eða styrkja hinu ýmsu sjóði á Landspítala.
Á árinu 2020 var lokið við taka grunn að nýjum meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut og bygging hússins er komin á góðan skrið. Meðferðarkjarnann verður um 70 þúsund fermetrar og stærsta byggingin sem rís í Hringbrautarverkefninu. Auk hans á að byggja við Hringbraut á næstu árum rannsóknarhús, tæknihús og bílastæðahús. Sjúkrahótel hefur verið byggt og er komið í notkun. „Markmið okkar er að spítalinn sé á heimsmælikvarða,“ sagði Páll Matthíasson forstjóri Landspítala í kynningarblaði um Hringbrautarverkefnið.
Nýr Landspítali ohf. hefur það hlutverk að hafa umsjón með og stýringu á Hringbrautarverkefninu fyrir hönd ríkisins. Á vef fyrirtækisins eru fréttir og fróðleikur um verkefnið.
Hér fyrir neðan eru fréttir sem birtust á árinu 2020 á vef Landspítala bæði sem texti og myndskeið.