Biðlistar vegna flestra skurðaðgerða á Landspítala - háskólasjúkrahúsi (LSH) hafa styst verulega á síðustu misserum. Eðlilegur biðtími eftir aðgerðum, öðrum en bráðaaðgerðum, er talinn 3-6 mánuðir. Í mörgum greinum er bið eftir aðgerð komin í eðlilegt horf. Þessi mikilvægi árangur hefur náðst með samstilltu átaki starfsmanna á legudeildum, skurðstofum og gjörgæsludeildum. Samtímis hefur verið unnið að samræmdum vinnubrögðum við gerð biðlista. Miðað við afköst síðustu missera eru horfur á að í árslok 2004 verði bið eftir flestum tegundum aðgerða á skurðdeildum LSH orðin 0-3 mánuðir.
Sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík hefur í flestum tilfellum skapað hinum ýmsu sérgreinum viðunandi starfsgrundvöll en lokaátak sameiningarferlisins stendur enn yfir. Þrátt fyrir það hefur orðið uppbygging innan flestra greina, meiri sérhæfing, samhæfðari vinnubrögð og öflugri starfseiningar.
Biðlistar í almennum skurðlækningum hafa styst verulega
Um 290 manns bíða nú eftir aðgerð í almennum skurðlækningum en voru rúmlega 750 í janúar 2003. Raunverulegur biðlisti er nánast eingöngu vegna bakflæðisaðgerða en sá biðlisti hefur styst verulega og er markmiðið að í janúar 2005 verði hann 70-100 manns eða u.þ.b. 3 mánuðir. Bið eftir öðrum aðgerðum, t.d vegna gallsteina, ristilvandamála, offitu eða kviðslits er 0-3 mánuðir. Engin bið hefur verið eftir aðgerðum vegna krabbameina eða bráðra sjúkdóma.
Biðlistar í liðskiptaaðgerðum gjörbreyttir
Biðtími í bæklunarskurðlækningum, þar á meðal liðskiptaaðgerðum, hefur styst umtalsvert en nú bíða 399 manns eftir bæklunaraðgerð. Í janúar 2003 var bið eftir bæklunaraðgerðum á LSH 6-12 mánuðir en biðtíminn er kominn niður í 3-6 mánuði. Markmiðið er að í janúar 2005 verði biðlistinn kominn niður í 120 manns og að biðtíminn verði aðeins 0-3 mánuðir.
Biðlistar vegna augnlækninga enn langir
Þeir sem biðu eftir aðgerð á augasteini í janúar 2003 voru um 1.050. Nú bíða heldur fleiri eftir slíkum aðgerðum eða um 1.190 einstaklingar. Þessar aðgerðir eru gerðar án innlagnar á sjúkrahús.Veitt er sérstakt fjármagn til þessara aðgerða og ræðst fjöldi þeirra af því.
Biðlistar í öðrum greinum
Aðrar sérgreinar skurðlækninga hafa nánast engan biðlista, heldur fyrst og fremst vinnulista. Nefna má þvagfæraskurðlækningar, æðaskurðlækningar og heila- og taugaskurðlækningar. Sjúklingar sem þurfa á aðgerð að halda í þessum sérgreinum komast að jafnaði að innan 3 mánaða. Sérstaklega skal tekið fram að allar aðgerðir vegna krabbameina eru gerðar við fyrsta tækifæri, oftast innan 1-2 vikna.
Gröfin eru einnig hér í meiri gæðum í PDF skjali: