Lionsklúbburin Fjörgyn hefur á undanförnum árum styrkt Barnaspítala Hringsins ötullega. Þannig hafa Lionsfélagar, einir eða í samstarfi við aðra, fært Barnaspítala Hringsins gjafir á undanförnum árum, þar á meðal öndunarvél fyrir nýbura og fyrirbura, hitakassa fyrir fyrirbura, heilasírita fyrir börn, brunabað fyrir brunasjúklinga, magaspeglunartæki, lungnaspeglunartæki, bakflæðimæli, ristilspeglunartæki, stafræna myndavél og hjarta-, öndunar- og súrefnisvaka fyrir bráðamóttöku barna. Áætlað heildarverðmæti gjafanna er væntanlega um 15 milljónir króna.
Barnaspítali Hringsins þakkar Lionsfélögum ötulan stuðning.
Mynd: Félagar úr Lionsklúbbnum Fjörgyn ásamt læknum af Barnaspítala Hringsins og gullfiskinum Rauðhettu við afhendingu gjafarinnar.