Opnuð verður myndlistarsýning á Barnaspítala Hringsins miðvikudaginn 20. október 2004 og aftur lifnar yfir menningarhorni á miðvikudegi eftir sumarleyfi. Dagskráin hefst kl. 12:00 og allir eru velkomnir.
1. Söngur: Dóra Steinunn Ármannsdóttir og Kolbrún Sæmundsdóttir, píanóleikari, frá Söngskólanum í Reykjavík.
2. Ávarp: Anna Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri hjúkrunar á barnasviði.
3. Ávarp og formleg opnun myndlistarsýningar: Elísabet Þórisdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðarinnar Gerðubergi. Þema sýningarinnar er: ,,Ég" frá Listasmiðjunni Gagn og Gaman.
"Ég" er sýning á myndverkum barna sem unnin hafa verið í listsmiðjunni Gagn og gaman í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þar hafa börn og listamenn eytt saman ófáum sumardögum við leik og listiðkun síðastliðin 15 ár. Afraksturinn eru ótal perlur af öllum stærðum, gerðum og listformum sem Gerðuberg hefur markvisst varðveitt með því að safna úrvali listaverka og heimilda frá hverri einustu listmiðju. Þetta listaverkasafn er svo brunnur margvíslegra sýninga og fróðleiks um tjáningu og sköpun barna. Verkin sem hér eru valin saman tengjast sjálfsmynd barnsins og sýn þess á sig og það sem stendur því næst.
Léttar veitingar verða fyrir framan leikstofu á 1. hæð.
Í fyrra var önnur sýning frá Listasmiðjunni Gagn og Gaman á barnaspítalanum. Smellið hér.