Ársfundur Landspítala - háskólasjúkrahúss verður föstudaginn 29. apríl 2005 í Salnum í Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 14:00. Fimm ár eru liðin frá stofnun LSH og verður ársfundurinn með heldur meiri viðhafnarbrag vegna þeirra tímamóta. Auk hefðbundinnar dagskrár, tónlistarflutnings og heiðrunar starfsmanna verða vísindamanni á LSH veitt glæsileg verðlaun fyrri merkt vísindastarf. Á ársfundinum verður fjallað sérstaklega um nýjar hugmyndir um spítalabyggingar og hlutverk heilbrigðisþjónustunnar og viðfangsefni.
Vísindadagar LSH verða 12. maí og 13. maí. Þeir eru árlegur viðburður þar sem fjallað er um vísindastarf á LSH.