Árlegur sumarmarkaður iðjuþjálfunar geðdeilda á Landspítala Hringbraut verður fimmtudaginn 2. júní 2005 milli klukkan 12:00 og 15:30 síðdegis. Markaðurinn er haldinn í anddyri geðdeildahúss LSH við Hringbraut.
Þar verða að venju vandaðar handunnar vörur á vægu verði; úrval leirmuna, vörur unnar af trésmíðaverkstæði og saumastofu.
Ágóði sölunnar rennur til starfsemi iðjuþjálfunar en þangað koma bæði sjúklingar af geðdeildunum við Hringbraut og fólk utan úr bæ í endurhæfingu.
Markmið iðjuþjálfunar er að meta færni skjólstæðinga, hvetja þá og styðja til sjálfstæðis við daglega iðju. Þar fæst aðstoð við að byggja upp líf utan stofnana; í vinnu eða námi og á heimili.
Iðjuþjálfun veitir námsstyrki tvisvar á ári í framhaldi af sumar- og jólamarkaði. Hún getur því gegnt margvíslegu og veigamiklu hlutverki í bata margra sem glímt hafa við geðsjúkdóma. Þeir sem vilja efla það starf eru hvattir til að koma á sumarmarkaðinn 2. júní.