Fimmtudaginn 2. mars voru Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins veitt þeim samborgurum sem láta gott af sér leiða með margvíslegum hætti. Þetta var í fyrsta sinn sem slík verðlaun voru veitt og sérlega ánægjulegt að blóðgjafinn Guðbjörn Magnússon fékk viðurkenningu sem Hvunndagshetjan. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Samfélagsverðlaunin og sagði í ræðu sinni að tími væri kominn til að veita verðlaun sem þessi.
Eftir athöfnina sagði Guðbjörn; ,,Þessi verðlaun eru tileinkuð þeim í Blóðbankanum sem gera það alltaf jafn gaman að koma þangað".
Í Fréttablaðinu 3. mars var sagt um Guðbjörn: ,,Guðbjörn Magnússon er sá Íslendingur sem oftast hefur gefið blóð og allt bendir til þess að hann nái því að gefa blóð í hundrað og fimmtugasta sinn á þessu ári. Blóðgjafar eru dæmi um sjálfboðaliða sem í kyrrþey vinna ákaflega brýnt starf í þágu samfélagsins. Ljóst er að þörf fyrir blóð fer stöðugt vaxandi og því er mikilvægt að hvetja sem flesta til að leggja sitt að mörkum".
Guðbjörn tekur á móti viðurkenningunni frá Þorsteini Pálssyni.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson.
Verðlaunahafar Samfélagsverðlaunanna.
Guðbjörn ásamt föður sínum Magnúsi.
Ari Edvald forstjóri 365 miðla, Ólafur Helgi formaður Blóðgjafafélagsins, Guðbjörn blóðgjafi og Magnús faðir Guðbjarnar.