Hjartagátt LSH er frá 1. september 2016 opin um helgar, samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar spítalans.
Hjartagátt er því með sólarhringsþjónustu alla daga vikunnar fyrir bráð hjartavandamál. Til þeirra teljast meðal annars brjóstverkir, mæði af líklegum hjartatoga, hjartsláttartruflanir, yfirlið af líklegum hjartatoga og hjartastopp.
Hjartagátt er á jarðhæð Landspítala Hringbraut en gengið inn Eiríksgötumegin.