Endurbætt húsnæði augndeildar Landspítala við Eiríksgötu var tekið í notkun í október 2016. Þar er eina sérhæfða augndeild landsins.
Ríkisstjórnin ákvað í upphafi árs að á næstu þremur árum yrði veitt auknu fé til að stytta biðlista eftir augasteinsaðgerðum. Til að deildin yrði betur í stakk búin að þjóna hlutverki sínu og mæta auknu álagi var ráðist í breytingar á húsnæði hennar. Nú eru augasteinsaðgerðir á tveimur skurðstofum í stað einnar áður auk þess sem ein skurðstofa er fyrir lyfjainndælingar.
Á árinu hefur tekist að stytta biðlista eftir augasteinsaðgerð um átta mánuði. Í upphafi árs var 18 mánaða bið eftir slíkri aðgerð en nú er biðin um 10 mánuðir. Ef áætlanir standast um aukið fé til augasteinsaðgerða ætti bið eftir þessum aðgerðum að styttast verulega og ná markmiði Embættis landlæknis um að vera innan þriggja mánaða.