Opnuð hefur verið á Landspítala sýning á verkum nemenda við Listaháskóla Íslands.
Þetta eru sjálfstæð verk nemendanna í tengslum við röntgendeildina á Landspítala Hringbraut í samvinnu við deildina. Verkin eru unnin með biðstofuna sérstaklega í huga þar sem beðið er með ólíkum hætti, á ólíkum stöðum og í ólíkum tilgangi. Verk nemandanna sýna nálganir þeirra við rýmið en þar gefur að líta verk sem tala til sögu rýmisins og hafa nokkrir nemendur fengist við að endurgera hluti sem þar voru fyrir. Þeir unnu verkin út frá sinni upplifun á deildinni en fengu kynningu á starfseminni og hinum fjölbreyttu aðferðum myndgreiningar sem notast er við í ferli greiningar á sjúkdómum.
Sýningin var opnuð 27.október 2016 og stendur yfir til 27. nóvember.