Það gengur mikið á hjá okkur á Landspítala öllu jafna og ekki hvað síst síðustu daga og vikur þegar stöðugar fréttir hafa verið af miklu álagi á spítalanum. Þar er engu orði ofaukið og aðdáunarvert hvernig allir hafa lagst á eitt til að láta starfsemina ganga við þessar erfiðu aðstæður. Það ber að þakka.
Samhliða því mikla álagi hefur sömuleiðis verið aðdáunarvert að fylgjast með framgangi biðlistaverkefnisins sem heilbrigðisráðherra undirritaði í mars á þessu ári. Átakið er til þriggja ára og bendir árangur þessara tæpu 9 mánaða sem þegar eru liðnir til þess að okkur muni takast að ná því markmiði að gera biðtíma eftir þeim aðgerðum sem það nær til styttri en 3 mánuði. Markmiðið er sömuleiðis að ná sem bestum árangri við styttingu á biðtíma eftir öllum aðgerðum. Sem dæmi um árangur þá hefur bið eftir bæklunaraðgerðum þegar styst um helming eða úr 16,7 mánuðum í 8,6 mánuði, augnaðgerðum úr 18,5 mánuðuðum í 10 og nú er biðtími eftir hjartaþræðingum rúmir 5 mánuðir í stað 9 áður. Samhliða þessu hefur tekist að minnka meðalbiðtíma aðgerða sem eru utan hins skilgreinda átaks, t.d. hefur biðtími eftir almennum skurðlækningum minnkað úr 7,3 mánuðum í 3,6 og í kvenlækningum úr 11,4 í 7,8 mánuði.
Í þessu ljósi ætti það að vera ráðamönnum umhugsunarefni hvaða árangri Landspítali gæti náð væru starfseminni skapaðar eðlilegar forsendur, sér í lagi til úrræða þegar eiginlegri spítalameðferð sleppir. Á Landspítala er þannig gríðarleg þekking, orka og sérhæfni sem enn er óvirkjuð. Nýtum þessa krafta.
Ein meginstoð Landspítala er umsvifamikil vísindastarfsemi. Við erum afar stolt af vísindastarfinu og nú nýlega var hleypt af stokkunum einni viðamestu vísindarannsókn sem ráðist hefur verið í hér á landi. Markmið rannsóknarinnar er að kanna mögulegan ávinning þess að skima fyrir forstigi mergæxlis. Sú þekking sem þarna verður til getur komið þeim sem í framtíðinni greinast með mergæxli til góða en einnig fáum við mikilvægar upplýsingar um áhrif skimunar og vitneskju um forstig krabbameina á andlega líðan. Við hvetjum alla til að taka þátt í rannsókninni og raunar hefur þetta farið vel af stað. Þegar hafa um 11.000 einstaklingar skráð sig og við höfum tekið við fyrstu sýnunum. Vísindin efla alla dáð.
Ég óska ykkur góðrar helgar, hvort heldur þið standið vaktina eða hlaðið batteríin!
Páll Matthíasson