Karl Andersen hefur verið ráðinn yfirlæknir Hjartagáttar frá 1. mars 2017 til næstu 5 ára.
Karl er sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum. Hann lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands 1987 og var við sérfræðinám í lyflækningum og hjartasjúkdómum við Östra/Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg í Svíþjóð. Hann lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Gautaborg 1997. Karl er prófessor í hjartalækningum við læknadeild Háskóla Íslands. Hann er fulltrúi Háskóla Íslands í Vísinda- og tækniráði og situr í Fagráði landlæknis um tóbaksvarnir. Karl hefur starfað að forvörnum hjarta- og æðasjúkdóma innan Hjartaverndar og Evrópusamtaka hjartalækna. . Vísindarannsóknir Karls snúa að forvörnum, áhættumati og meðferð bráðra kransæðaheilkenna.
Karl hefur verið settur yfirlæknir Hjartagáttar frá hausti 2013