Í dag lauk vorfundi Landsambands heilbrigðisstofnana á Selfossi. Í þessum samtökum eru heilbrigðisstofnanir af landinu öllu. Við höfum undanfarin misseri lagt sérstaka áherslu á að efla samstarf opinberra stofnana og á fundinum ræddum við skipulag heilbrigðisþjónustu, vanda við að veita viðeigandi þjónustu á réttum stöðum og auðvitað mál málanna, mönnun. Fundinn sóttu einnig heilbrigðisráðherra og starfsfólk velferðarráðuneytisins og var mikill samhljómur í umræðunni um mikilvægi samstarfs og samráðs þessara aðila. Við þurfum öll sem eitt að leggjast á árarnar og finna leiðir til að efla íslenska heilbrigðisþjónustu. Við ræddum hvernig við getum nýtt takmarkaðar auðlindir, sér í lagi hvernig unnt er að miðla sérfræðiþekkingu um landið og bæta flæði sjúklinga milli stofnana. Mönnun heilbrigðisþjónustunnar er áskorunin sem við öll þurfum að horfa sérstaklega til og við ræddum m.a. hvernig nýta má fjarkennslu í grunn- og framhaldsnámi í hjúkrun og ánægjulegan árangur af samstarfi lyflækningasviðs við Royal Collage of Physicians í London. Þar hefur náðst eftirtektarverður árangur sem hefur orðið fleiri sérgreinum til hvatningar.
Í síðustu viku ákvað heilbrigðisráðherra að fela Sjúkratryggingum Íslands að ganga til samninga við Landspítala, ásamt fleirum, í tengslum við biðlistaátak stjórnvalda. Átakið hófst, eins og við þekkjum, fyrir réttu ári og stendur í þrjú ár. Markmiðið er að ná biðtíma eftir tilteknum aðgerðum í þrjá mánuði og árangurinn hefur ekki látið á sér standa - biðtími eftir t.a.m. liðskiptaaðgerðum hefur á þessu ári farið úr sextán mánuðum í sex og góðar forsendur eru til þess að við náum markmiðum átaksins innan tímarammans. Áskorunin sem framundan er felst í þeirri fjölgun sem orðið hefur á biðlistanum sjálfum og við munum takast á við hana af krafti, eins og aðrar áskoranir sem við stöndum frammi fyrir.
Að lokum vil ég minna alla, sem ekki hafa þegar gert það, að taka frá 24. apríl fyrir ársfund Landspítala sem fram fer á Hilton Nordica.
Hafið það gott um helgina hvort heldur þið standið vaktina eða hlaðið batteríin!
Páll Matthíasson