Hjónin Kristín Þorkelsdóttir og Hörður Daníelsson hafa fært Hjartagátt á Landspítala að gjöf tvær vatnslitamyndir eftir Kristínu sem þakklætisvott. Myndirnar eru kærkomin prýði fyrir deildina og starfsfólkið þar er hjónum þakklátt fyrir.
Önnur myndanna ber nafnið Dverghjörtun tifa og er leikur að orðum en dverghjarta er harðgerð planta af reykjurtaætt sem blómstrar frá júníbyrjun og fram í september.
Kristín er margverðlaunaður myndlistarmaður og grafískur hönnuður en hún er hvað þekktust fyrir hönnun íslensku peningaseðlanna.
Björg Sigurðardóttir deildarstjóri og Karl Andersen yfirlæknir á Hjartagátt tóku við gjöfinni þann 24. mars 2017.