Ársskýrsla Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) 2022 hefur verið birt á vefsíðu rannsóknarstofunnar. Í henni er meðal annars rakið ítarlega að hvaða verkefnum var unnið á árinu 2022.
Meginhlutverk rannsóknarstofunnar er að vera miðstöð í öldrunarfræðum og skapa aðstöðu til rannsókna, styðja við rannsóknir og fræðslu auk þess að stuðla að samvinnu og samstarfi fræðimanna og Landspítala sem tengjast öldrun.