A. Malbikstöðin vinnur að malbiksviðgerðum á Eiríksgötu, milli Barónsstígs og Snorrabrautar, þriðjudaginn 15. ágúst 2023.
Talsverð áhrif á inn- og útkeyrsluleiðir á Landspítala Hringbraut.
- Fyrir hádegi verður lokuð akreinin frá Landspítala að Snorrabraut - kort.
- Eftir hádegi verður lokuð akreinin frá Snorrabraut að Barónsstíg (upp að Hallgrímskirkju) - kort.
B. Malbikstöðin vinnur að malbiksviðgerðum á Eiríksgötu, milli Barónsstígs og Snorrabrautar, miðvikudaginn 16. ágúst 2023.
Mikil áhrif á inn- og útkeyrsluleiðir á Landspítala Hringbraut.
- Ef veður leyfir miðvikudaginn 16. ágúst verður Eiríksgötu alfarið lokað fyrir umferð sem hefur veruleg áhrif á aðkomu að spítalanum því þá verður gatan malbikuð í heild sinni - kort
Áætlunin gerir ráð fyrir að framkvæmdir hefjist um kl. 9:00 og standi fram til kl. 17:00. Veður getur þó haft talsverð áhrif á framkvæmd sem þessa og því mögulegt að tímasetningar riðlist aðeins af þeim sökum.
Kortamyndin fyrir ofan var sótt i ja.is